EM: Þýskaland líkegt til að verja titilinn
Eftir Víði Sigurðsson í Tampere, vs@mbl.isÞað eru óárennilegir mótherjar sem íslenska landsliðið tekst á við í lokaleik sínum í úrslitakeppni Evrópumótsins í Tampere í dag. Andstæðingarnir klukkan 13 eru heims- og Evrópumeistararar Þýskalands sem hafa sigrað Frakka og Norðmenn með samtals 9:1 í tveimur fyrstu leikjum sínum.
Þýska liðið hefur orðið Evrópumeistari samfleytt frá 1995 og varð heimsmeistari í Kína fyrir tveimur árum, 2007, í annað skiptið í röð. Þann titil hyggst liðið verja á heimavelli árið 2011. Innanborðs eru margar af bestu knattspyrnukonum heims sem hafa sýnt í fyrstu tveimur leikjunum að þær ætla sér ekkert annað en enn einn Evrópumeistaratitilinn.
Þar fer Birgit Prinz fremst í flokki en þssi 31 árs gamli framherji hefur skorað 123 mörk í 194 landsleikjum fyrir Þýskaland. Hún hefur verið kjörinn knattspyrnukona ársins í heiminum í þrígang, 2003, 2004 og 2005 og verið í sigurliðum Þýskalands allt frá 1995 og hefur unnið alla fjóra Evrópumeistaratitla þess síðan. Þá hefur hún verið í lykilhlutverki í heimsmeistaraliðinu árin 2003 og 2007.
Meðal annarra lykilmanna liðsins eru Linda Bresonik, kraftmikill varnartengiliður, framherjinn Inka Grings, miðjumaðurinn Melaine Behringer, miðvörðurinn Annike Krahn og markvörðurinn Nadine Angerer, sem af mörgum er talin besti markvörður heims. Fatime Bajramaj, framherji af kósóvskum ættum, kom inná og skoraði tvö mörk gegn Noregi í fyrsta leiknum, Anja Mittag hefur komið sterk af bekknum og Kim Kulig er líka í stóru hlutverki á miðjunni.
Þær Bresonik og Bajramaj hafa gert 2 mörk hvor fyrir þýska liðið í keppninni og þær Mittag, Grings, Krahn, Behringer og Laudehr eru með sitt markið hver. Birgit Prinz hefur ekki komist á markalistann en verið mjög skæð í sóknarleik liðsins og lagt upp nokkur markanna.
Þýskaland vann Noreg, 4:0, í fyrsta leik sínum á EM og fylgdi því eftir með því að vinna Frakkland, 5:1, í leik þar sem staðan var orðin 4:0 í byrjun síðari hálfleiks.
Tíu sigrar Þjóðverja í tíu leikjum gegn Íslandi
Ísland og Þýskaland mættust 10 sinnum á árunum 1986 til 2000 en hafa ekki leitt saman hesta sína síðan. Þjóðverjar hafa unnið allar 10 viðureignir þjóðanna sem hafa verið sem hér segir:
1986 Ísland - Þýskaland 1:4, vináttuleikur á Kópavogsvelli. Katrín María Eiríksdóttir skoraði mark Íslands.
1986 Ísland - Þýskaland 0:5, vináttuleikur á Laugardalsvelli.
1987 Þýskaland - Ísland 5:0, vináttuleikur í Werden.
1987 Þýskaland - Ísland 3:2, vináttuleikur í Delmenhorst. Ragnheiður Víkingsdóttir og Guðrún Sæmundsdóttir skoruðu mörk Íslands.
1996 Þýskaland - Ísland 8:0, vináttuleikur í Mannheim.
1996 Þýskaland - Ísland 3:0, vináttuleikur í Pforzheim.
1996 Ísland - Þýskaland 0:3, umspil EM á Laugardalsvelli.
1996 Þýskaland - Ísland 4:0, umspil EM í Koblenz.
1999 Þýskaland - Ísland 5:0, undankeppni EM í Oldenburg.
2000 Ísland - Þýskaland 0:6, undankeppni EM á Kópavogsvelli.
Fimm leikmenn íslenska liðsins í dag hafa tekið þátt í leikjum gegn Þjóðverjum. Katrín Jónsdóttir lék alla sex leikina á árunum 1996-2000, Þóra B. Helgadóttir og Guðrún Sóley Gunnarsdóttir léku leikina 1999 og 2000, Edda Garðarsdóttir lék leikinn 1999 og Rakel Logadóttir lék síðasta leikinn, árið 2000.
Þá hefur nuddari liðsins, Erla Hendriksdóttir, leikið fjóra af þessum leikjum á árunum 1996-2000, fararstjórinn Laufey Sigurðardóttir lék báða leikina 1986 og aftur tvo leiki 1996, og þá var markvarðaþjálfarinn Guðmundur Hreiðarsson í sama hlutverki í síðasta leik þjóðanna, árið 2000.






