EM: Var ekki nógu ákveðin

Hólmfríður Magnúsdóttir og Katrín Ómarsdóttir fengu gullið færi til að jafna metin. stækka

Hólmfríður Magnúsdóttir og Katrín Ómarsdóttir fengu gullið færi til að jafna metin. mbl.is/Golli

mbl.is Eftir Víði Sigurðsson í Tampere, vs@mbl.is

„Ég hélt að Margrét væri að senda á mig, en var síðan ekki nógu ákveðin þegar Hólmfríður var komin þarna líka. Auðvitað átti ég bara að ráðast á boltann. Hún er markagráðug eins og ég og var frekari, og eftirá var ég svolítið pirruð yfir því að við skyldum ekki nýta  þetta. Í svona leik fáum við ekki mörg færi og þessvegna verður að nýta þau eins og hægt er," sagði Katrín Ómarsdóttir landsliðskona um dauðafæri sem hún og Hólmfríður Magnúsdóttir fengu í leiknum gegn Þýskalandi á EM í dag.

„Við spiluðum ótrúlega þéttan varnarleik og hlupum eins og vitleysingar til að loka á þær en sendingar og móttaka hjá þýsku leikmönnunum eru ótrúleg. Þær eru ótrúlega góðar, en þannig séð samt ekkert svo mikið betri en við. Við erum nýkomnar uppí þennan gæðaflokk, en þær eru ekki svo rosalega betri.

Við fengum þrjá sénsa til að jafna. En ég held að þessi leikur og leikurinn við Noreg hafi sýnt að við eigum fullt erindi í svona keppni. Við beittum svona varnarleik í dag og hann dugði okkur langt, hvert lið velur að sjálfsögðu sína leikaðferð og þessi hentaði okkur núna.

Ég fer sátt frá þessum leik og liðið spilaði vel gegn Noregi, þó ég fengi ekki tækifæri þar. Í Frakkaleiknum gekk ekkert upp hjá liðinu. Okkur vantaði herslumuninn til að halda hreinu og skora sjálfar. Þetta er samt þvílík reynsla, og það sást best hvað hana vantaði í Frakkaleiknum. Það er ljóst að við munum leggja allt í sölurnar til að endurtaka leikinn og komast aftur á stórmót," sagði Katrín Ómarsdóttir.

  • Til baka
  • Blogga um frétt
  • Senda

Íþróttir, EM í fótbolta — Fleiri fréttir

Fimmtudaginn 5. apríl

Miðvikudaginn 4. apríl

Þriðjudaginn 3. apríl

Mánudaginn 2. apríl


finnur.is