EM: Við getum enn unnið afrek
Eftir Víði Sigurðsson í Tampere, vs@mbl.is„Það er mjög spennandi að fá að mæta Þjóðverjum. Þó við myndu ekki gera annað í þessu móti en að vinna Þjóðverja yrði það afrek útaf fyrir sig," sagði Ólína G. Viðarsdóttir landsliðskona í knattspyrnu við mbl.is um viðureignina við Evrópu- og heimsmeistarana í lokaleik íslenska liðsins á EM í Tampere í dag.
„Þó mótið sé búið fyrir okkur sem slíkt getum við enn unnið afrek með því að gera eitthvað óvænt gegn Þjóðverjum og við ætlum ekkert að spara okkur í leiknum. Leikurinn er líka frábær undirbúningur fyrir næstu verkefni okkar í undankeppni heimsmeistaramótsins, og ef við ætlum okkur alla leið á HM verðum við að standa okkur gegn svona liðum. Þetta er leikur sem allir vilja spila."
Ólína sagði að íslensku leikmennirnir væru búnir að horfa mikið á leiki þýska liðsins í keppninni. „Já, við erum búnar að horfa á báða leikina og ég þekki ágætlega til þess hvernig þær spila. Þetta er virkilega gott lið með afburðagóða leikmenn, þær eru duglegar og samviskusamar, hlaupa mikið og eru líkamlega sterkar. Í einu orði sagt er þetta hörkulið og það er mikil áskorun að mæta því.
Norsararnir sóttu hratt á þýska liðið og það gafst nokkuð vel en svo voru þær norsku orðnar þreyttar, sprungu í lokin og fengu þá á sig þrjú mörk. Harkan verður að vera til staðar, við verðum að eiga allar 100 prósent leik gegn þessu liði því ef einhver slakar á, fer illa," sagði Ólína.
Saumuð uppi á hótelherbergi eftir leikinn
Hún þurfti að fara á smá aðgerð eftir leikinn gegn Noregi á fimmtudagskvöldið. „Já, ég fékk skurð á höfuðið í seinni hálfleiknum þegar ég lenti í einhvers konar árekstri við norskan leikmann, þó ég viti ekki nákvæmlega hvað gerðist. Þessu var bara lokað strax og ég hélt áfram en Reynir læknir saumaði svo tvö spor í höfuðið á mér uppi á hótelherbergi seinna um kvöldið.
Þetta var bara smá rispa og ég er öllu vön, ég hef fengið mörg göt á hausinn í gegnum tíðina og kippti mér ekkert upp við þetta," sagði Ólína G. Viðarsdóttir.






