EM: England og Noregur áfram - Danir sátu eftir

Þýskaland hefur titil að verja á EM í Finnlandi. stækka

Þýskaland hefur titil að verja á EM í Finnlandi. Golli / Kjartan Þorbjörnsson

England og Noregur leika í átta liða úrslitum Evrópukeppni kvenna  í Finnlandi en Danir sitja eftir með sárt ennið. Svíar tryggðu sér efsta sætið í C-riðli eftir 1:1 jafntefli gegn Englendingum. Englendingar og Norðmenn fengu fjögur stig í þriðja sæti síns riðils en Danir voru með þrjú stig.

Keppni í C-riðli lauk í dag. Ítalía sigraði Rússland 2:0 með mörkum frá þeim Gabbiadani á 77. mínútu og Zorri á þeirri 90.
Svíar og Englendingar gerðu 1:1 jafntefli. Sandell Svensson skoraði mark Svía úr vítaspyrnu undir lok fyrir hálfleiks en White hafði áður komið Englendingum yfir á 28. mínútu. 

Liðin sem mætast í átta liða úrslitum eru:
3. september: Finnland – England í Turku:
3. september: Holland – Frakkland í Tampere:
4. september: Þýskaland – Ítalía í Lahti:
4. September: Svíþjóð – Noregur í Helsinki:

  • Til baka
  • Blogga um frétt
  • Senda

Íþróttir, EM í fótbolta — Fleiri fréttir

Fimmtudaginn 5. apríl

Miðvikudaginn 4. apríl

Þriðjudaginn 3. apríl

Mánudaginn 2. apríl


finnur.is