Englendingar í undanúrslit á EM
Englendingar tryggðu sér í dag sæti í undanúrslitum Evrópumóts kvenna í knattspyrnu með sigri á liði gestgjafanna, Finna, 3:2. Þeir mæta þar með sigurliðinu úr viðureign Frakka og Hollendinga í undanúrslitum en lið Frakklands og Hollands leika í dag klukkan 17.
Aðeins eitt mark var skorað í fyrri hálfleik í viðureign Finna og Englendinga í dag. Eniola Aluko skoraði það mark á 14. mínútu. Hún var síðan aftur á ferðinni með þriðja mark Englendinga á 67. mínútu, aðeins einni mínútu eftir að Finnar höfðu minnkað muninn, í 2:1, með marki Annica Sjölund.
Fara Williams kom enska liðinu í 2:0 með marki á 49. mínútu. Finnar reyndu hvað þeir gátu til að jafna metin á lokakaflanum en tókst aðeins að bæta við einu marki. Þar var að verki Linda Sällström ellefu mínútum fyrir leikslok.
Viðureign Englendinga við sigurliðið úr viðureign Hollendinga og Frakka fer fram í Tampereá sunnudag.






