Íþróttir
|
EM í fótbolta
| mbl
| 3.9.2009
| 19:45
| Uppfært
20:34
Hollendingar í undanúrslit eftir vítakeppni
Margrét Lára Viðarsdóttir í baráttu við Laura Georges frá Frakklandi, en franska liðið tapaði fyrir Hollendingum í kvöld. mbl.isGolli
Hollendingar tryggðu sér sæti í undanúrslitum á EM kvenna í knattspyrnu með því að leggja Frakka í vítaspyrnukeppni.
Hvorugu liðinu tókst að skora í leiknum og ekki heldur í framlengingunni. Frakkar hófu vítaspyrnukeppnina og skoruðu bæði lið úr fjórum fyrstu spyrnum sínum. Næstu fimm spyrnur misfórust, þar af þrjár frá Frökkum, og Anouk Hoogendijk tryggði sigurinn, 5:4, fyrir Holland.
Hollendingar mæta því Englendingnum í undanúrslitum.
© Árvakur hf.
Öll réttindi áskilin






