Þjóðverjar í undanúrslit á EM

Inka Grings fagnar síðara marki sínu í dag. stækka

Inka Grings fagnar síðara marki sínu í dag. AP

Heims- og Evrópumeistarar Þjóðverja komust í dag í undanúrslit á Evrópumeistaramótinu í knattspyrnu kvenna í Finnlandi þegar liðið lagði Ítalíu, 2:1. Staðan í hálfleik var 1:0, þýska liðinu í hag. Þýskaland mætir annað hvort Noregi eða Svíþjóð í undanúrslitum á mánudaginn.

Inka Grings skoraði bæði mörk þýska liðsins. Hið fyrra á fjórðu mínútu og það síðara á annarri mínútu síðari hálfleiks.  Patrizia Panico minnkaði muninn fyrir Ítalíu á 63. mínútu.

Þýska liðið hafði yfirburði í leiknum lengst af en það slakaði talsvert á klónni eftir að hafa skorað annað mark sitt snemma í síðari hálfleik. Ítalska liðið gafst ekki upp náði að minnka muninn og átti álitlegar sóknir eftir. Á síðustu mínútu leiksins varði markvörður þýska liðsins, Nadine Angerer, frábærlega þegar einn ítölsku leikmannanna skallaði knöttinn frá markteigshorni eftir fyrirgjöf frá hægri kanti.


  • Til baka
  • Blogga um frétt
  • Senda

Íþróttir, EM í fótbolta — Fleiri fréttir

Fimmtudaginn 5. apríl

Miðvikudaginn 4. apríl

Þriðjudaginn 3. apríl

Mánudaginn 2. apríl


finnur.is