EM: Englendingar í úrslitaleikinn
Kelly Smith skoraði fyrra mark Englands og er hér í baráttu við Annemarie Kiesel-Griffioen í leiknum í dag. Reuters
England er komið í úrslitaleik í Evrópukeppni kvenna í knattspyrnu í fyrsta skipti eftir sigur á Hollandi, 2:1, í framlengdum leik í undanúrslitunum sem fram fór í Tampere í Finnlandi í dag.
Enska liðið sótti megnið af leiknum en gekk illa að ráða við sterka vörn Hollendinga. Kelly Smith náði loksins að brjóta ísinn á 61. mínútu og koma Englendingum yfir en þá kom hollenska liðið útúr varnarskelinnn og Marlous Pieëte jafnaði aðeins þremur mínútum síðar, 1:1.
Þannig var staðan allt þar til fjórar mínútur voru eftir af framlengingu en þá náði Jill Scott að skora með skalla eftir hornspyrnu og tryggja Englandi sigurinn, 2:1.
Í úrslitum leikur England gegn annaðhvort Þýskalandi eða Noregi sem mætast í hinum undanúrslitaleiknum á morgun.






