Íþróttir
|
EM í fótbolta
| mbl
| 7.9.2009
| 9:00
EM: Þær norsku fá 67.000 kr. á mann ef þær vinna gullið
Takist norska kvennalandsliðinu að vinna gullið á Evrópumótinu í knattspyrnu í Finnlandi mun það fá 70.000 norskar krónur frá norska knattspyrnusambandinu í bónus. Það myndi þýða að hver leikmaður í landsliðshópnum, sem telur 22 manns, fengi 3.183 krónur en það jafngildir 67.000 íslenskum krónum.
Noregur mætir Evrópumeisturum Þýskalands í undanúrslitum á EM í dag og þar ræðst það hverjir mæta Englendingum í úrslitaleiknum en Englendingar lögðu Hollendinga í framlengdum leik í undanúrslitum í gær, 2:1.
© Árvakur hf.
Öll réttindi áskilin






