Stærri EM-keppni næst?

Íslensku áhorfendurnir á EM í Finnlandi þóttu standa sig sérstaklega vel og aðeins lið heimamanna ... stækka

Íslensku áhorfendurnir á EM í Finnlandi þóttu standa sig sérstaklega vel og aðeins lið heimamanna fékk jafn öflugan stuðning í leikjum sínum. Golli / Kjartan Þorbjörnsson

Morgunblaðið Eftir Víði Sigurðsson vs@mbl.is

Flest bendir til þess að sextán lið leiki í næstu úrslitakeppni Evrópumóts kvenna í knattspyrnu, eftir fjögur ár. Kvennanefnd UEFA, Knattspyrnusambands Evrópu, kom saman í Helsinki síðasta þriðjudag og samþykkti tillögu þar að lútandi sem hefur verið send stjórn UEFA.

Í þeirri keppni sem nú stendur yfir í Finnlandi leika í fyrsta skipti 12 lið til úrslita en fyrir fjórum árum voru þau átta talsins.

Guðrún Inga Sívertsen, gjaldkeri Knattspyrnusambands Íslands, á sæti í kvennanefnd UEFA. Hún sagði við Morgunblaðið að styrkleiki íslenska landsliðsins hefði m.a. verið lagður til grundvallar þessari ósk um fjölgun.

„Fjórir þjálfarar liða sem ekki tóku þátt í úrslitakeppninni voru fengnir til að skoða liðin vel, sérstaklega þau sem talin voru veikari, og meta styrkleika þeirra með hliðsjón af mögulegri stækkun keppninnar. Niðurstaða þeirra var sú að fjölgun liða úr átta í tólf hefði ekki veikt keppnina. Horft var sérstaklega til íslenska liðsins en þjálfararnir töldu það hafa staðið sig mjög vel í afar sterkum riðli og tapað sínum leikjum mjög naumlega. Þar að auki var mikið rætt um magnaða stuðningsmenn íslenska liðsins sem fengu mikið hrós í kvennanefndinni fyrir sína frammistöðu í Finnlandi,“ sagði Guðrún Inga.

Nánar er fjallað um málið í íþróttablaði Morgunblaðsins í dag.

Nánar um málið
í Morgunblaðinu
Áskrifendur:
Lesa blaðið hér
Ekki með áskrift?
Skoða áskriftarleiðir
  • Til baka
  • Blogga um frétt
  • Senda

Íþróttir, EM í fótbolta — Fleiri fréttir

Fimmtudaginn 5. apríl

Miðvikudaginn 4. apríl

Þriðjudaginn 3. apríl

Mánudaginn 2. apríl


finnur.is