Þjóðverjar í úrslitaleik EM
Simone Laudehr, t.h. fagnar marki sínu gegn Norðmönnum í undanúrslitum á EM kvenna í knattspyrnu í dag. Reuters
Heims- og Evrópumeistarar Þjóðverja í knattspyrnu kvenna tryggði sér áðan sæti í úrslitaleik Evrópumótsins í Finnlandi með sigri á Noregi, 3:1. Norska liðið var sterkara í fyrri hálfleik og var marki yfir að honum loknum. Þýskaland mætir Englandi í úrslitaleik í Helsinki á fimmtudaginn.
Isabell Lehn Herlovsen kom norska liðinu yfir á 10. mínútu leiksins í dag. Næstu mínútur eftir markið skall á stundum hurð nærri hælum við þýska markið en allt kom fyrir ekki, Norðmönnum lánaðist ekki að bæta við mörkum.
Varamaðurinn Simone Laudehr jafnaði metin fyrir Þýskaland á 59. mínútu. Aðeins tveimur mínútum síðar kom annar varamaður, Fatmire Bajramaj, Þýskalandi yfir. Þar með tóku leikmenn þýska liðsins öll völd á leikvellinum og áttu þeir nokkur færi til þess að bæta við mörkum. Það var síðan ekki fyrr en á síðustu mínútu leiksins það tókst. Þar var að verki Bajramaj á nýjan leik. Skömmu áður hafði norska liðið átt vænlega skyndisókn sem lauk með skoti sem fór talsvert framhjá þýska markinu.






