Þjóðverjar Evrópumeistarar í knattspyrnu
Þjóðverjar vörðu Evrópumeistaratitilinn í knattspyrnu kvenna í dag þegar þeir unnu Englendinga, 6:2, í úrslitaleik í Helsinki eftir að hafa verið marki yfir, 2:1, í hálfleik. Þetta er fimmta Evrópumeistaramótið í röð sem Þjóðverjar vinna.
Birgit Prinz skoraði fyrsta markið á 20. mínútu og tveimur mínútum síðar bætti Melaine Beringer við öðru marki. Fjórum mínútum síðar minnkaði Karen Carney muninn fyrir enska liðið og staðan var 2:1 í hálfleik.
Kim Kulig kom þýska liðinu í 3:1 á 50. mínútu.
Kelly Smith minnkaði muninn fyrir Englendinga, 3:2, á 55. mínútu.
Inka Grings jók forskot þýska liðsins í tvö mörk á nýjan leik, 4:2, á 62. mínútu. Ellefu mínútum síðar bætti Grings við fimmta marki Þjóðverja, 5:2, á 73. mínútu.
Birgit Prinz skoraði sjötta mark Þjóðverja á 75. mínútu, 6:2.
Grings hefur skorað sex mörk í úrslitakeppninni og varð markadrottning Evrópumótsins. Hún skoraði helmingi fleiri mörk en sú sem varð næsta markahæst.








