EM: Margrét Lára markahæst

Margrét Lára Viðarsdóttir á fullri ferð í átt að norska markinu á EM. stækka

Margrét Lára Viðarsdóttir á fullri ferð í átt að norska markinu á EM. mbl.is/Golli

Þótt Margrét Lára Viðarsdóttir hafi ekkert mark skorað í lokakeppni Evrópumóts kvenna í knattspyrnu í Finnlandi þá er hún samt markahæsti leikmaður keppninnar í heild, þegar litið er á þá sem skoruðu flest mörk í undankeppninni og síðan aðalkeppninni sem lauk í gær.

Þetta kemur fram í tölfræði á heimasíðu Knattspyrnusambands Evrópu, UEFA.

Margrét Lára skoraði alls 12 mörk í undankeppninni. Svíinn Victoria Svensson komst næst því að jafna metin við Margréti Láru. Svensson skoraði átta mörk í undankeppninni og þrjú í lokakeppninni, alls 11 mörk. Natalia Mokshanova frá Rússlandi gerði 11 mörk í undankeppninni en ekkert í Finnlandi. Merete Pedersen frá Danmörku gerði 10 mörk í undankeppninni en ekkert í Finnlandi.

Inka Grings sem skoraði flest mörk í Finnlandi, sex, skoraði ekkert í undankeppninni þar sem hún lék ekkert með þýska landsliðinu í henni. Grings kom inn í liðið fyrir lokakeppnina eftir að hafa tekið sér þriggja ára hlé frá landsliðinu.

Nánar um málið
í Morgunblaðinu
Áskrifendur:
Lesa blaðið hér
Ekki með áskrift?
Skoða áskriftarleiðir
  • Til baka
  • Blogga um frétt
  • Senda

Íþróttir, EM í fótbolta — Fleiri fréttir

Fimmtudaginn 5. apríl

Miðvikudaginn 4. apríl

Þriðjudaginn 3. apríl

Mánudaginn 2. apríl


finnur.is