Íþróttir
|
EM í fótbolta
| mbl
| 7.2.2010
| 13:39
Drillo ánægður með riðilinn
Egil „Drillo" Olsen, landsliðsþjálfari Norðmanna, segist vera ánægður með riðilinn sem Norðmenn lentu í þegar dregið var í Evrópumótinu í knattspyrnu fyrr í dag. Norðmenn leika í riðli með Íslendingum, Dönum, Portúgölum og Kýpverjum.
„Ég er ánægður með þennan riðil. Þetta hefði getað verið verra og við fögnum því að lenda ekki í A-riðli," hefur fotball.no eftir Olsen. Í A-riðli eru Þýskaland, Tyrkland, Austurríki, Belgía, Kasakstan og Aserbaídsjan.
Hann segir að möguleikar Norðmanna á að komast í úrslit mótsins séu góðir. „Þetta eru fimm jöfn lið, sem geta tekið stig hvert af öðru. Við eigum góða möguleika á að enda í hópi þeirra bestu."
© Árvakur hf.
Öll réttindi áskilin






