Íþróttir
|
EM í fótbolta
| mbl
| 11.10.2010
| 18:07
Portúgalar æfa í Laugardal
Cristiano Ronaldo, þekktasti leikmaður Portúgala, á æfingu á Laugardalsvelli í kvöld. mbl.is/Kristinn
Portúgalska landsliðið í knattspyrnu æfði á Laugardalsvelli í kvöld en Íslendingar og Portúgalar mætast þar í undankeppni Evrópumótsins klukkan 19:45 annað kvöld.
Í liði Portúgala eru heimsfrægar stjörnur á borð við Cristiano Ronaldo, leikmaður Real Madrid, og Nani, leikmaður Manchester United.
© Árvakur hf.
Öll réttindi áskilin






