EHF staðfestir leikbann Jensens

Johnny Jensen. stækka

Johnny Jensen. Reuters

Aganefnd evrópska handknattleikssambandsins staðfesti á fundi sínum í dag að Johnny Jensen leikmaður norska landsliðsins, sem fékk rautt spjald í leiknum gegn Slóvenum í gær, verði í leikbanni þegar Norðmenn mæta Íslendingum á Evrópumótinu í Serbíu annað kvöld.

Jensen, sem er besti varnarmaður norska liðsins, fékk rautt spjald í byrjun seinni hálfleiksins fyrir að slá mótherja sinn í hálsinn. Dómarar leiksins sendu inn skýrslu og fer Jensen sjálfkrafa í eins leiks bann.

  • Til baka
  • Blogga um frétt
  • Senda

Íþróttir, EM í fótbolta — Fleiri fréttir

Fimmtudaginn 5. apríl

Miðvikudaginn 4. apríl

Þriðjudaginn 3. apríl

Mánudaginn 2. apríl


finnur.is