EM: Guðjón Valur í úrvalsliði mótsins

Guðjón Valur Sigurðsson er í úrvalsliði EM í handknattleik í Serbíu. stækka

Guðjón Valur Sigurðsson er í úrvalsliði EM í handknattleik í Serbíu. Ljósmynd/Hilmar Þór Guðmundsson

Guðjón Valur Sigurðsson hefur verið valinn í úrvalslið Evrópumeistaramótsins í handknattleik í Serbíu. Hann var valinn í úrvalsliðið í stöðu vinstri hornamanns en Guðjón Valur er á meðal markahæstu leikmanna mótsins með 41 mark í sex leikjum.

Tilkynnt var um valið rétt áðan en besti maður mótsins hefur einnig verið valinn og er það Serbinn Momir Ilic.

Úrvalslið mótsins er skipað eftirtöldum leikmönnum:

Markvörður: Darko Stanic, Serbíu

Vinstra horn: Guðjón Valur Sigurðsson, Íslandi

Vinstri skytta: Mikkel Hansen, Danmörku

Leikstjórnandi: Uros Zorman, Slóveníu

Línumaður: Rene Toft Hansen, Danmörku

Hægri skytta: Marko Kopjar, Króatíu

Hægra horn: Christian Sprenger, Þýskalandi

Markahæstur: Kiril Lazarov, Makedóníu, 61 mark.

Besti varnarmaðurinn: Virtan Morros, Spáni

Besti leikmaðurinn: Momir Ilic, Serbíu

  • Til baka
  • Blogga um frétt
  • Senda

Íþróttir, EM í fótbolta — Fleiri fréttir

Fimmtudaginn 5. apríl

Miðvikudaginn 4. apríl

Þriðjudaginn 3. apríl

Mánudaginn 2. apríl


finnur.is