Strákunum spáð 6.-7. sætinu á EM

Gylfi Þór Sigurðsson og félagar þykja ekki líklegir til að …
Gylfi Þór Sigurðsson og félagar þykja ekki líklegir til að komast áfram. mbl.is/Craig Watson

Veðbankar fylgjast grannt með Evrópukeppni 21-árs liðanna í Danmörku eins og öðrum stórmótum í fótboltanum. Unibet hefur gefið út spár og stuðla fyrir mótið og telur Ísland  vera í 6.-7. sæti af liðunum átta sem leika um Evrópumeistaratitilinn.

Sérfræðingar Unibet segja að keppnin sé óvenjulega sterk í ár og þar nægi að nefna að Spánverjar séu með tvo heimsmeistara úr A-landsliðinu í sínum hópi, þá Javi Martinez og Juan Mata. Ríkjandi meistarar, Þjóðverjar, hafi ekki einu sinni komist í úrslitakeppnina, fyrst og fremst vegna þess að þeir töpuðu 4:1 fyrir Íslandi.

Spánverjar eru taldir líklegastir sem sigurvegarar og síðan Englendingar en Danir og Tékkar koma þar á eftir. Unibet setur eftirfarandi líkur á liðin átta:

Spánn               2,65
England            5,0
Danmörk           7,0
Tékkland           7,0
Sviss                 9,0
Ísland              11,0
Úkraína            11,0
Hvíta-Rússland 21,0

mbl.is

Bloggað um fréttina

Fleira áhugavert
Fleira áhugavert