Benedikt Grétarsson
Hermann Hreiðarsson lék sem atvinnumaður í Englandi um árabil en Eyjamaðurinn lék með sjö enskum félagsliðum á farsælum ferli. Hvernig metur Hermann möguleika Íslands gegn Englandi, þegar liðin mætast í 16 liða úrslitum Evrópumótsins á mánudagskvöld?
„Bara eins og við höfum spilað, þá eru fínir möguleikar. Það segir sig sjálft. Þetta eru þrjú hörkulið sem við höfum spilað við en það er svo gott stand á liðinu, sérstaklega andlega og karakterinn er mikill.
Það skiptir engu máli hvort við lendum undir eða hvernig leikurinn er að þróast. Það vita allir sín hlutverk upp á hár og bíða bara eftir sínum færum. Það er mikil þolinmæði og þeir vita að færin munu koma. Það er aldrei búið að koma eitt eða neitt stress í liðið.
Auðvitað eru Englendingar sigurstranglegri og þeir eru með frábæran hóp með gríðarlega hæfileika innanborðs. Mér finnst þetta ótrúlega skemmtilegt lið, eitt skemmtilegasta enska liðið sem hefur verið í mörg ár. Það eru ungir strákar komnir upp sem hafa mikla orku og hraða. Þetta er klárlega langbesta liðið sem við höfum mætt á mótinu til þessa."
Sjá viðtalið við Hermann í heild sinni í íþróttablaði Morgunblaðsins í dag.