Slóveni dæmir leikinn gegn Englendingum

Damir Skomina.
Damir Skomina. AFP

Damir Skomina frá Slóveníu mun dæma viðureign Íslendinga og Englendinga í 16-liða úrslitunum á Evrópumótinu í knattspyrnu í Nice á mánudagskvöldið.

Skomina er 39 ára gamall og meðal þeirra leikja sem hann hefur dæmt er leikur Arsenal og AC Milan í 16-liða úrslitunum í Meistaradeildinni, Chelsea og Benfica í 8-liða úrslitum Meistaradeildarinnar, hann dæmdi seinni leik Real Madrid og Manchester City í undanúrslitum Meistaradeildarinnar á þessu tímabili og var dómari í leik Frakka og Svisslendinga á Evrópumótinu í Frakklandi.

mbl.is

LEIKIR Í DAG - 25. APRÍL

Útsláttarkeppnin

LEIKIR Í DAG - 25. APRÍL

Útsláttarkeppnin