Wayne Rooney, fyrirliði enska landsliðsins í knattspyrnu, segist hafa séð Íslendinga leggja Hollendinga að velli í undankeppni Evrópumótsins en England mætir Íslandi í 16-liða úrslitunum á Evrópumótinu í knattspyrnu í Nice á mánudagskvöldið.
„Íslenska liðið var afar vel skipulagt og erfitt að brjóta það á bak aftur og þetta var líkur leikur þeim sem við höfum spilað á Evrópumótinu. Við vitum að þetta verður erfiður leikur og það verður erfitt að brjóta þá niður.
Það verður mikilvægt að við spilum á háu tempói, látum þá hafa fyrir hlutunum, reynum að lokka þá framar á völlinn og nýta færin þegar þau koma,“ sagði Rooney við fréttamenn.