Það er gríðarleg stemmning meðal stuðningsmanna íslenska karlalandsliðsins í knattspyrnu sem mætir Englandi á Allianz Riviera-leikvanginum í Nice í 16 liða úrslitum Evrópumótsins klukkan 19.00 í kvöld.
Stuðningsmenn íslenska liðsins tóku að vanda vel undir þegar Ég er kominn heim ómaði um völlinn eins og sjá má í myndskeiðinu hér að ofan.