Dorrit og Eggert dönsuðu sigurdans

Eggert Magnússon, fyrrverandi formaður KSÍ og fyrrverandi stjórnarmaður í UEFA, …
Eggert Magnússon, fyrrverandi formaður KSÍ og fyrrverandi stjórnarmaður í UEFA, stígur dans með Dorrit Moussaieff. mbl.is/Skapti Hallgrímsson

Forsetahjónin, Ólafur Ragnar Grímsson og Dorrit Moussaieff, voru meðal gesta á Stade de Nice í gærkvöld þegar Ísland vann sigurinn stórkostlega á Englandi í 16-liða úrslitum Evrópumóts karla í knattspyrnu.

Á meðal annarra gesta var Eggert Magnússon, fyrrverandi formaður KSÍ, sem fagnaði sigrinum auðvitað vel og innilega. Þau Eggert og Dorrit dönsuðu til að mynda saman sigurdans á vellinum eftir að sigurinn var í höfn, eins og sjá má á meðfylgjandi myndskeiði.

mbl.is

LEIKIR Í DAG - 19. MARS

Útsláttarkeppnin

LEIKIR Í DAG - 19. MARS

Útsláttarkeppnin