Anthony Martial, framherji franska landsliðsins í knattspyrnu, er farinn að undirbúa sig ásamt liðsfélögum sínum fyrir leikinn gegn Íslandi í 8-liða úrslitum Evrópumótsins á sunnudag en leikið verður á Stade de France-leikvanginum í París.
Ísland lagði England 2:1 í 16-liða úrslitum mótsins á mánudag meðan Frakkar lögðu Íra að velli í spennandi leik.
Frakkar undirbúa sig nú fyrir leikinn gegn Íslandi en Martial virðist vera sjóðandi heitur fyrir leikinn og ber að varast hann.
Hann skoraði úr laglegri bakfallsspyrnu á æfingu liðsins í dag en hægt er að sjá myndskeið af því hér fyrir neðan.
.@AnthonyMartial : son superbe retourné acrobatique à l'entraînement ce soir à Clairefontaine ! #FiersdetreBleus pic.twitter.com/mRvXS1gddg
— Equipe de France (@equipedefrance) June 29, 2016