Hollenska kvennalandsliðið í knattspyrnu er komið í úrslit á Evrópumótinu á heimavelli eftir 3:0 sigur á Englandi í undanúrslitum í dag. Vivianne Miedema kom þeim hollensku á bragðið í fyrri hálfleik, áður en Danielle van de Donk bætti við marki í síðari hálfleik. Millie Bright varð svo fyrir því óláni að skora sjálfsmark í uppbótartíma og þar við sat.
Holland mætir Danmörku í úrslitaleik á sunnudaginn kemur, en Danir höfðu betur gegn Austurríkismönnum fyrr í dag. Bæði lið eru að leika sinn fyrsta úrslitaleik á Evrópumóti.