Aron: Stór munur á þriðja og fjórða sæti

Aron Pálmarsson sækir að frönskum varnarmanni í leiknum í gær. stækka

Aron Pálmarsson sækir að frönskum varnarmanni í leiknum í gær. mbl.is/Kristinn Ingvarsson

mbl.is Eftir Guðmund Hilmarsson í Vín, gummih@mbl.is

,,Það er stór munur á að lenda í þriðja sæti eða því fjórða á móti eins og þessu og ég veit að við mætum alveg dýrvitlausir. Það er kannski skrýtið fyrir mig, 19 ára gamlan sem er að keppa á mínu fyrsta stórmóti, er að vera drullufúll yfir því að vera spila um þriðja sætið," sagði Aron Pálmarsson við mbl.is en hann átti frábæra innkomu í fyrri hálfleik gegn Frökkunum í gær og skoraði 6 mörk á 15 mínútna kafla.

,,Fyrst við tökum ekki gullið að þessu sinni þá kemur ekki til greina að sleppa bronsinu. Við rífum okkur upp og mætum grimmir í leikinn um þriðja sætið,“ sagði Aron, sem heldur betur hafið staðið sig vel á sínu fyrsta stórmóti með íslenska landsliðinu.

  • Til baka
  • Blogga um frétt
  • Senda

Bloggað um fréttina

Loka

Íþróttir, EM handbolta — Fleiri fréttir

Laugardaginn 24. mars

Mánudaginn 30. janúar

Sunnudaginn 29. janúar

Laugardaginn 28. janúar

Föstudaginn 27. janúar

Fimmtudaginn 26. janúar

Miðvikudaginn 25. janúar


finnur.is