Ásgeirs bíða fyrirspurnir í Danmörku

Ásgeir Örn Hallgrímsson og Ólafur Stefánsson. stækka

Ásgeir Örn Hallgrímsson og Ólafur Stefánsson. mbl.is/Kristinn

Ásgeir Örn Hallgrímsson, landsliðsmaður í handknattleik, segist vonast eftir því að finna sér nýjan vinnuveitanda í lok vikunnar en sá síðasti, GOG í Danmörku, var úrskurðaður gjaldþrota á dögunum. Ásgeir hafði ekki rætt við umboðsmenn sína þegar Morgunblaðið ræddi við hann í gær en sagðist þó vita til þess að fyrirspurnir hefðu borist frá nokkrum félögum.

Umboðsmenn Ásgeirs eru fyrrverandi landsliðsmenn Dana, þeir Claus Flensborg og Søren Stryger, sem báðir eru þeir örvhentir eins og Ásgeir. Þeir ættu því að hafa skilning á hans þörfum enda báðir þrautreyndir atvinnumenn.

Nánar er farið yfir samningsstöðuna hjá nokkrum leikmönnum íslenska landsliðsis í Morgunblaðinu í dag.

Nánar um málið
í Morgunblaðinu
Áskrifendur:
Lesa blaðið hér
Ekki með áskrift?
Skoða áskriftarleiðir
  • Til baka
  • Blogga um frétt
  • Senda

Íþróttir, EM handbolta — Fleiri fréttir

Laugardaginn 24. mars

Mánudaginn 30. janúar

Sunnudaginn 29. janúar

Laugardaginn 28. janúar

Föstudaginn 27. janúar

Fimmtudaginn 26. janúar

Miðvikudaginn 25. janúar


finnur.is