Gríðarlegur áhugi Íslendinga á EM
Lesendur mbl.is sýndu liðinu mikinn áhuga og aldrei áður hafa jafnmargir heimsótt íþróttavef mbl.is meðan stórmót í handknattleik fer fram. Samkvæmt samræmdri vefmælingu hjá Modernus fékk íþróttavefur mbl.is 169.504 heimsóknir dagana 25. – 31. janúar. Á því tímabili lék íslenska liðið gegn Króatíu, Rússum og Noregi í milliriðli, auk undanúrslitaleiksins gegn Frökkum og úrslitaleiksins um þriðja sætið gegn Pólverjum.
Til samanburðar má nefna að á meðan Ólympíuleikarnir í Peking stóðu sem hæst var einnig sett met í heimsóknafjölda á íþróttavef mbl.is, alls 148.167 heimsóknir á einni viku, samkvæmt mælingum Modernus.
Á Evrópumeistaramótinu í Noregi árið 2008 var heimsóknafjöldinn á íþróttavef mbl.is 78.891 þegar mest var og árið 2007 á HM í Þýskalandi fékk íþróttavefur mbl.is rétt rúmlega 80.000 heimsóknir á einni viku.






