Mikið spjallað um handboltamenn

Samtals voru um 1500 tilvísanir í handknattleik og leikmenn landsliðsins sem birtust á íslenskum fréttamiðlum, bloggum og spjallvefum á tímabilinu 17. janúar til 31. janúar.

Þetta kemur fram í úttekt sprotafyrirtækisins Clara, sem rekur umræðuvöktunarþjónustuna Vaktarann.

Mest var talað um Ólaf Stefánsson, fyrirliða liðsins en um það bil 6,5% af allri umfjöllun var um hann. Arnór Atlason kom næstur með 4,5% af allri umfjöllun og 4% af umfjölluninni voru um Róbert Gunnarsson.

Clara segir, að til samanburðar hafi verið rúmlega 3100 tilvísanir í handknattleik og leikmenn landsliðsins á síðustu 90 dögum. Því hafi 48% af umræðunni átt sér stað á þessum 14 daga kafla, mest undir lok Evrópumótsins. 

Vefsvæði um handboltaumfjöllun

Ólafur Stefánsson í leik gegn Noregi.

Ólafur Stefánsson í leik gegn Noregi. mbl.is/Kristinn

  • Til baka
  • Blogga um frétt
  • Senda

Innlent — Fleiri fréttir

Í dag

Í gær


finnur.is