Ísland mætir Króatíu á mánudag

Kátir Íslendingar fagna marki í seinni hálfleiknum í Linz í …
Kátir Íslendingar fagna marki í seinni hálfleiknum í Linz í kvöld. mbl.is/Kristinn

Keppni í milliriðli EM í Austurríki hefst á mánudaginn og þar mætast tvö efstu liðin, Króatía og Ísland, strax í fyrstu umferðinni. Króatar hefja keppni í milliriðli með 4 stig og Íslendingar með 3 stig en þetta eru einu liðin sem fara taplaus í milliriðil númer eitt.

Noregur vann Úkraínu, 31:29, í lokaleik A-riðils rétt áðan og þar með varð ljóst að úr A-riðli færu áfram Króatía með 4 stig, Noregur með 2 stig og Rússar án stiga. Úkraínumenn eru úr leik og halda heim eins og Serbar, Svíar og Ungverjar.

Staðan í milliriðli I:

Króatía 4 stig
Ísland 3 stig
Noregur 2 stig
Danmörk 2 stig
Austurríki 1 stig
Rússland 0 stig

Ísland mætir síðan Rússlandi á þriðjudaginn og Noregi á fimmtudaginn. Tvö efstu lið riðilsins komast í undanúrslit mótsins.

Ísland mætir Króatíu klukkan 15 að íslenskum tíma á mánudaginn.

Staðan í milliriðli II:

Spánn 3 stig
Pólland 3 stig
Frakkland 3 stig
Slóvenía 2 stig
Þýskaland 1 stig
Tékkland 0 stig

Keppni í milliriðli II hefst á morgun en þá mætast Þýskaland og Frakkland kl. 16.30, Pólland og Spánn kl. 18.30 og loks Slóvenía og Tékkland kl. 20.30.

mbl.is

Bloggað um fréttina

Fleira áhugavert
Fleira áhugavert