Ásgeir Örn: Veit ekki hvað var í vatninu

Ásgeir Örn Hallgrímsson.
Ásgeir Örn Hallgrímsson. mbl.is/Kristinn Ingvarsson

,,Það er óhætt að segja að við höfum mætt ofjarli okkar í þessum leik. Við stóðum vel í þeim í fyrri hálfleik og komust marki yfir þegar skammt var eftir af honum. Ég veit ekki hvað var í vatninu sem við drukkum í leikhléinu. Við byrjuðum seinni hálfleikinn hræðilega illa og áttum í raun ekki möguleika eftir það," sagði Ásgeir Örn Hallgrímsson við mbl.is eftir tapið gegn Frökkum á EM í dag.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert