Arnór: Getum gengið hnarreistir frá borði

Arnór Atlason stækka

Arnór Atlason mbl.is/Hilmar Þór

„Nú hlakka ég bara til þess að komast heim til fjölskyldunnar á morgun en það tekur ekkert frí við hjá mér því framundan er úrslitaleikur í danska bikarnum um aðra helgi og alls á ég átta leiki í febrúar svo það verður að halda vel á spöðunum,“ sagði Arnór Atlason eftir leikinn við Frakka á EM í Serbíu.

„Burtséð frá hvaða sæti við höfnum í held ég að við getum verið sáttir og gengið hnarreistir frá borði. Það er margt jákvætt í leik okkar svo sem að ungir menn eru að koma inn í hópinn og standa sig vel. Það er engin ástæða til að vera fúll. Okkar fókus er á þau verkefni sem eru framundan og við getum farið með margt gott úr þessu móti inn í þau verkefni og dregið lærdóm af öðru sem betur mátti fara,“ segir Arnór Atlason.

  • Til baka
  • Blogga um frétt
  • Senda

Íþróttir, EM handbolta — Fleiri fréttir

Laugardaginn 24. mars


finnur.is