H.C. Andersen hefði ekki skrifað betra ævintýri

Lasse Svan Hansen fagnar marki gegn Svíum. stækka

Lasse Svan Hansen fagnar marki gegn Svíum. Reuters

„H.C. Andersen sjálfur hefði ekki getað skrifað betra ævintýri,“ segir í umsögn á vefsíðu dönsku sjónvarpsstöðvarinnar TV2 um þá staðreynd að Danir leika í undanúrslitum Evrópumótsins í handknattleik.

Danir þurftu að stóla á að Pólverjar færu með sigur af hólmi gegn Þjóðverjum og þeir sjálfir legðu Svía að velli og það gekk eftir.

Það blés ekki byrlega fyrir Dönum í fyrstu leikjum milliriðilsins. Þeir byrjuðu á því að tapa fyrir Serbum og Pólverjum en með því að leggja Þjóðverja og Svía að velli auk hagstæðra úrslita í öðrum leikjum fór svo að lokum að Danir náðu öðru sætinu og mæta Spánverjum í undanúrslitum en í hinni viðureigninni eigast við Króatar og Serbar.

  • Til baka
  • Blogga um frétt
  • Senda

Íþróttir, EM handbolta — Fleiri fréttir

Laugardaginn 24. mars


finnur.is