Íþróttir
|
EM handbolta
| mbl
| 25.1.2012
| 20:39
Ísland í 10. sæti eftir jafntefli Ungverja
Ungverjar og Króatar gerðu í kvöld jafntefli, 24:24, í síðasta leiknum í milliriðli tvö á Evrópumótinu í handknattleik í Novi Sad. Þar með náðu Ungverjar fjórða sætinu í riðlinum og enda í 7.-8. sæti en Ísland hafnar í fimmta sæti riðilsins og í 10. sæti keppninnar í heild.
Króatar höfðu þegar tryggt sér sæti í undanúrslitum mótsins en þeir urðu í öðru sæti riðilsins og mæta Serbum í undanúrslitum á föstudagskvöldið.
Spánverjar fengu 9 stig í riðlinum, Króatar 7, Slóvenar 4, Ungverjar 4, Íslendingar 3 og Frakkar urðu neðstir, einnig með 3 stig.
Pólland hafnaði í 5. sætinu í hinum milliriðlinum en fékk fleiri stig en Ísland og er því í 9. sæti og Ísland í því tíunda.
© Árvakur hf.
Öll réttindi áskilin






