Þórir: Var alveg þokkalegt hjá okkur
„Það var greinilegt að ekki var mikið undir í leiknum og ljóst að það lið sem langaði meira til að vinna myndi vinna. Því var niðurstaðan jafntefli alveg í lagi. Ég held að þessi leikur hafi verið þokkalegur hjá okkur,“ sagði Þórir Ólafsson, landsliðsmaður í handknattleik, við mbl.is eftir lokaleikinn á EM í Serbíu dag.
„Við náðum góðum leik í fyrri hálfleik og vorum um tíma með fimm til sex marka forskot en misstum það niður. Eftir það stefndi leikurinn í jafntefli,“ sagði Þórir.
„Það sem brennur helst á okkur er að hafa ekki unnið Slóvena í riðlakeppninni. Þá hefðum við farið áfram með tvö stig í milliriðil og með það í farteskinu hefði kannski verið meira undir gegn Spánverjum og Frökkum en raun varð á og þeir leikir spilast á annan hátt.
Það var gott að enda keppnina á jafntefli og með örlítið bros á vör,“ sagði Þórir.
Þórir segir jákvætt við mótið í heild, ekki síst síðustu þrjá leiki, að ungir strákar hafi fengið tækifæri á að spreyta sig á stórmóti. Þeir hafi fengið nasaþefinn sem sé mikilvægt fyrir framtíðina. Nóg sé um að vera á þessu ári. Forkeppni Ólympíuleikanna í apríl, undankeppni HM í vor og vonandi Ólympíuleikar í sumar. „Hópurinn hefur stækkað hjá okkur og Rúnar, Aron Rafn, Ólafur Bjarki og Ólafur Guðmundsson eru allt flottir strákar,“ segir Þórir Ólafsson.






