Áttu að missa boltann
Ísland átti að fá síðustu sókn leiksins gegn Frökkum í viðureign þjóðanna á Evrópumeistaramótinu í handknattleik í gær. En vegna athugunarleysis beggja eftirlitsmanna og dómara leiksins fengu Frakkar að halda boltanum og reyna að tryggja sér sigurinn í stöðunni 29:29.
Frakkar voru að hefja sókn 15 sekúndum fyrir leikslok þegar Claude Onesta þjálfari þeirra tók leikhlé. Þá voru Frakkar með einum leikmanni meira á vellinum en þeir máttu samkvæmt reglum.
„Ég tók eftir þessu og kvartaði strax við eftirlitsmennina sem tóku ekki eftir neinu og því var ekkert gert. Onesta og fleiri viðurkenndu við mig að þeim hefðu orðið á þau mistök að vera með einum of marga leikmenn inn á þegar síðasta sókn þeirra hófst,“ sagði Guðmundur Þórður Guðmundsson, landsliðsþjálfari, við Morgunblaðið í gær.
„Eftirlitsmenn á leiknum vinna bara alls ekki sitt starf og því miður er það ekki í fyrsta skiptið sem það gerist,“ sagði Guðmundur sem mótmælti því hástöfum í byrjun leikhlésins að Frakkar fengju að komast upp með þetta. Eftirlitsmenn og dómarar sem ekki tóku eftir neinu létu mótmæli Guðmundur og fleiri úr íslenska liðinu sem vind um eyru þjóta.
Sjá meira um málið og fleira varðandi EM í Morgunblaðinu í dag.






