EM: Óttast að upp úr sjóði í Belgrad
Boris Tadic, forseti Serbíu, hvatti landa sína til þess í dag að sína stillingu á morgun þegar Serbar mæta Króötum í undanúrslitum á Evrópumeistaramótinu í handknattleik karla í Belgrad. Hermt er að yfirvöld búi sig undir að upp úr kunni að sjóða í borginni í tengslum við leikinn en kveikt var í fjórum bifreiðum með króatískum númerum í borginni Novi Sad í nótt og veist að hópi stuðningsmanna króatíska landsliðsins.
Serbnesk fréttastofa segir að yfirvöld í Króatíu ráði landsmönnum frá að fara yfir landamærin og til Belgrad á leikinn.
Hópur serbneskra þjóðernissinna veittist að Króötum í Novi Sad í gærkvöldi þegar þeir voru á leið frá viðureign Króata og Ungverja í lokaumferð milliriðlakeppni Evrópumótsins.
Grunnt er á því góða meðal margra Serba annarsvegar og Króata hinsvegar en þjóðirnar áttu í stríði um fjögurra á skeið eftir að Júgóslavía liðaðist í sundi í upphafi tíunda áratugar síðustu aldar.
Tvær bifreiðanna sem kveikt var í í Novi Sad í nótt voru í eigu handknattleikssambands Króatíu og stóðu þær á vöktuðu svæði fyrir utan hótel sem liðið dvaldist á. Að sögn lögreglu í Novi Sad hafa 13 verið handteknir í tengslum við málið. Hluti þeirra tengist hópi herskárra serbneskra þjóðernissinna, sem kallast 'Obraz' sem staðið hafa fyrir margvíslegum ófriði í landinu á síðustu árum m.a. þegar upp úr sauð í gleðigöngu samkynhneigðra í Belgrad sumarið 2010.
Tadic sagði hvatti fólk til þess að halda ró sinni og sagði átökin í Novi Sad í gærkvöldi „fullkomlega ólíðandi.“ Um leið bað hann landa sína til þess að haga sér innan siðaðra marka í kringum leikinn annað kvöld.
Leikur Serba og Króata í undanúrslitum Evrópumótsins hefst kl. 19.45 í stórri íþrótta- og sýningarhöll í Belgrad. Hún rúmar um 20 þúsund manns í sæti og er reiknað með að uppselt verði á leikinn.
Fyrr um daginn mætast Makedóníumenn og Slóvenar í leiknum um 5. sætið. Að þeirri viðureign lokinni leiða Danir og Spánverjar saman hesta sína í hinni undanúrslitaviðureign mótsins.






