Glimrandi sóknarleikur í keppninni

Guðjón Valur Sigurðsson var markahæsti leikmaður Íslands á EM. stækka

Guðjón Valur Sigurðsson var markahæsti leikmaður Íslands á EM. Ljósmynd/Hilmar Þór Guðmundsson

„Við fórum inn í þessa keppni með nokkra óvissu um hvernig okkur myndi reiða af vegna þess að hvorki Ólafur Stefánsson né Snorri Steinn Guðjónsson voru með. Þá var Alexander Petersson meiddur og einnig Ingimundur Ingimundarson,“ sagði Guðmundur Þórður Guðmundsson, landsliðsþjálfari í handknattleik, í samtali við Morgunblaðið í gær eftir að keppni var lokið hjá íslenska liðinu og ljóst að það hafnaði í 10. sæti.

„Í ljósi þessarar óvissu átti ég von á að þetta mót reyndist okkur mjög erfitt. Þegar á hólminn var komið spilaðist sóknarleikurinn alveg ótrúlega vel. Rætt hefur verið um það hér á meðal manna að sóknarleikurinn hafi átt erfitt uppdráttar í keppninni á kostnað varnarleiksins.

Við höfum upplifað keppnina á annan hátt þar sem sóknarleikur okkar hefur verið alveg glimrandi góður gegn mörgum af bestu liðum heims. Framan af áttum við í erfiðleikum með varnarleikinn og helstu ástæður þess eru m.a. að Alexander var ekki heill heilsu. Hann hefur verið sterkasti varnarmaður okkar árum saman. Ingimundur var einnig meiddur og þess vegna hikstaði vörnin meðal annars.

Besta mót Vignis frá upphafi

Þegar á keppnina leið fannst mér liðið vinna sig hægt og bítandi inn í mótið hvað varnarleikinn varðar. Vignir Svavarsson spilaði sennilega sitt besta mót frá upphafi með landsliðinu og leysir Ingimund mjög vel af auk þess sem hann skoraði mörg mörk eftir hraðaupphlaup. Varnarleikurinn til dæmis á móti Ungverjum var stórkostlegur. Ég hef oft horft á upptöku frá leiknum og ég sannfærist betur og betur um hversu frábærlega tókst til.

Sjá lengra viðtal við Guðmund og fleira sem tengist EM í Morgunblaðinu í dag.

Nánar um málið
í Morgunblaðinu
Áskrifendur:
Lesa blaðið hér
Ekki með áskrift?
Skoða áskriftarleiðir
  • Til baka
  • Blogga um frétt
  • Senda

Íþróttir, EM handbolta — Fleiri fréttir

Laugardaginn 24. mars


finnur.is