Íslendingar ofarlega á tölfræðilistunum á EM
Það er nánast sama hvert litið er, íslenska landsliðið í handknattleik á oftast nær leikmenn við toppinn í tölfræðinni á Evrópumótinu í Serbíu. Íslenska landsliðið hafnaði í 10. sæti og fyrir undanúrslitin þar sem flest lið hafa spilað sex leiki eru Íslendingarnir áberandi.
Guðjón Valur Sigurðsson er fjórði markahæsti maður mótsins hingað til með 41 mark. Markahæstur er Kiril Lazarov frá Makedóníu sem er áberandi þegar litið er á tölfræðina en hann skoraði 53 mörk. Aron Pálmarsson er næstur Guðjóni Val af Íslendingunum með 22 mörk og Arnór Atlason skoraði 21 mark. Guðjón Valur skoraði 15 af þessum mörkum af vítalínunni en Þórir Ólafsson er í efsta sæti ásamt 12 öðrum leikmönnum sem nýttu öll sín vítaköst. Þórir ásamt Jure Dolanec frá Slóveníu skoruðu þó úr fjórum vítaköstum eða fleirum en aðrir sem voru með 100% nýtingu skoruðu úr þremur vítaköstum eða minna.
Arnór Atlason var sem fyrr drjúgur í stoðsendingunum og gaf flestar slíkar af íslensku leikmönnunum eða 25. Hann er jafnframt í þriðja sæti af öllum leikmönnum mótsins hingað til en Uros Zorman frá Slóveníu hefur gefið flestar sendingar á samherja sína sem skilað hafa mörkum eða 34. Aron Pálmarsson gaf svo 22 stoðsendingar og er í 5. sæti.
Ásgeir stal flestum boltum og Björgvin varði flest vítaköst
Ásgeir Örn Hallgrímsson er í 1. sæti ásamt fimm öðrum leikmönnum með 5 stolna bolta. Þeir sem stálu flestum boltum að meðaltali í riðlakeppninni og milliriðlunum eru Filip Jicha og Jan Filip báðir frá Tékklandi. Þeir stálu 4 boltum í þremur leikjum en Ásgeir Örn 5 boltum í sex leikjum. Meiri tölfræði úr vörninni en Sverre Jakobsson varði 8 skot í vörninni og er í 3. - 4. sæti ásamt Alexander Chernoivanov frá Rússlandi sem er þó hæstur ef litið er til meðaltals. Sverre er einnig ofarlega á lista þegar litið er til tveggja mínútna brottvísana. Þar er hann í 5. sæti eftir að hafa sjö sinnum verið vikið af velli. Oliver Roggisch frá Þýskalandi er efstur á þeim lista en dómararnir þurftu ellefu sinnum að lyfta tveimur fingrum á loft þegar Roggisch braut af sér.
Björgvin Páll Gústavsson markvörður landsliðsins varði 8 vítaköst í riðlakeppninni og milliriðlunum, flest allra markvarða. Þá kemst hann einnig í 4. sætið á lista yfir flest varin vítaköst þegar mið er tekið af hlutfalli þeirra sem hann fékk á sig. Hreiðar Levý Guðmundsson er reyndar með sömu prósentu og Björgvin eða 33% en hann varði eitt af þremur vítaköstum.
Í öðrum skotum en vítaköstum var Björgvin Páll með 28% markvörslu og er í 20. sæti af markvörðunum. Hann fékk á sig 210 skot og varði 59 þeirra samkvæmt heimasíðu mótsins. Aðeins fengu tveir aðrir markverðir fleiri skot á sig en Björgvin Páll af þeim 20 efstu. Það voru þeir Thierry Omeyer hjá Frakklandi og Niklas Landin hjá Dönum. Þeir fengu báðir að verjast 224 skotum. Landin gekk betur og varði 79 þeirra eða flest allra á mótinu. Það skilar honum þó aðeins í 5. sæti ef miðað er við hlutfall í prósentum. Omeyer varði hinsvegar 69 skot.








