Þrjú lið hrepptu HM-sætin

Ulrik Wilbek og hans menn í danska landsliðinu tryggðu sér HM-sæti í gær. stækka

Ulrik Wilbek og hans menn í danska landsliðinu tryggðu sér HM-sæti í gær. Reuters

Danir tryggðu sér í gær þriðja og síðasta sætið í lokakeppni HM á Spáni 2013, um leið og þeir nældu í fjórða og síðasta sætið í undanúrslitunum á Evrópumótinu í handknattleik í Serbíu.

Serbar, Króatar og Danir eru þar með komnir beint á HM, ásamt heimsmeisturum Frakka og gestgjöfum Spánverja.

Liðin sem enduðu í 5.-14. sæti á EM (að Frökkum undanskildum) verða í efri styrkleikaflokki þegar dregið verður í umspilið á sunnudaginn. Það eru Slóvenía, Pólland, Ísland, Þýskaland, Ungverjaland, Makedónía, Svíþjóð, Noregur og Tékkland.

Í neðri styrkleikaflokki verða Rússland, Slóvakía, Austurríki, Portúgal, Svartfjallaland, Holland, Litháen, Bosnía og Hvíta-Rússland. vs@mbl.is

Nánar um málið
í Morgunblaðinu
Áskrifendur:
Lesa blaðið hér
Ekki með áskrift?
Skoða áskriftarleiðir
  • Til baka
  • Blogga um frétt
  • Senda

Íþróttir, EM handbolta — Fleiri fréttir

Laugardaginn 24. mars


finnur.is