Íþróttir
|
EM handbolta
| mbl
| 27.1.2012
| 21:15
Betra fyrir Íslendinga ef Danir verða meistarar
Íslendingar ættu að vonast til þess að Danir hampi Evrópumeistaratitlinum í handknattleik á sunnudaginn þegar þeir etja kappi við heimamenn í Serbíu í úrslitaleiknum.
Fari Danir með sigur af hólmi munu Íslendingar lenda í auðveldari riðli í forkeppni fyrir Ólympíuleikana en þeir færu þá í riðil með Króötum, Japönum og Sílemönnum.
Ef Serbar verða Evrópumeistarar fara Íslendingar hins vegar í riðil með Spánverjum, Slóvenum og Brasilíumönnum.
Tvö efstu liðin í riðlum forkeppninnar tryggja sér sæti á Ólympíuleikunum í London.
© Árvakur hf.
Öll réttindi áskilin






