Danir spila til úrslita á EM í Serbíu
Danska landsliðið í handknattleik karla spilar til úrslita eftir að liðið vann Spán í dag, 25:24, í undanúrslitum á Evrópumótinu sem fram fer í Serbíu. Þetta er í fyrsta skipti síðan núverandi fyrirkomulag var tekið upp árið 2002 að lið sem fer ekki með stig í milliriðil spilar til úrslita.
Staðan í hálfleik var 12:10 en Danir náðu svo góðu forskoti sem Spánverjar náðu smám saman að minnka. Lokamínúturnar voru æsispennandi þar sem Danir reyndust sterkari.
Þetta er annað stórmótið í röð sem Danir slá Spánverja út í undanúrslitum en það gerðist einnig á HM í Svíþjóð í fyrra. Danir mæta annaðhvort Serbum eða Króötum í úrslitum en liðin mætast síðar í dag.
Rasmus Lauge Schmidt var markahæstur Dana með 6 mörk en René Toft Hansen og Mikkel Hansen skoruðu báðir fjögur mörk. Niklas Landin varði 15 skot í marki Dana og mörg hver á afar mikilvægum augnablikum.
Hjá Spánverjum var það línutröllið Julen Aguinagalde sem skoraði mest eða 5 mörk úr jafn mörgum skotum. Næstur honum kom Jorge Maqueda með 4 mörk. José Manuel Sierra varði hátt í 20 skot í marki Spánverja og þar af eitt vítakast.






