EM: Christiansen hættir eftir ÓL

Lars Christiansen fagnar einu að 1.500 mörkum sínum fyrir danska landsliðið. stækka

Lars Christiansen fagnar einu að 1.500 mörkum sínum fyrir danska landsliðið. Reuters

Danski hornamaðurinn Lars Christiansen ætlar ekki að gefa kost á sér í danska landsliðið í handknattleik eftir Ólympíuleikana í London. Ef danska landsliðið kemst á leikana segir Christiansen að endi verði bundinn á 20 ára feril með landsliðinu.

Christiansen er leikreyndasti og markahæsti leikmaður danska landsliðsins. Hann á að baki 336 landsleiki og í þeim síðasta, gegn Svíum á EM á miðvikudagskvöldið, skoraði hann sitt 1.500. landsliðsmark.

Christiansen ætlar að leika áfram með Kolding fram á mitt árið 2013. Lengst af sínum ferli lék hann með Flensburg í Þýskalandi. 

Christiansen verður fertugur á árinu. Hann segir það lengi hafa verið markmið sitt að hætta með landsliðinu á þessu ári með því að taka þátt í Ólympíuleikum.

  • Til baka
  • Blogga um frétt
  • Senda

Íþróttir, EM handbolta — Fleiri fréttir

Laugardaginn 24. mars


finnur.is