EM: Danir hæfilega bjartsýnir
Danir eru hæfilega bjartsýnir á að leggja Spánverja í kvöld í undanúrslitum Evrópumótsins í handknattleik og komst í úrslitaleik á öðru stórmótinu í röð. Þeir rifja nú upp sigurinn á Spánverjum, 28:24, í undanúrslitum heimsmeistaramótsins fyrir ári síðan.
Peter Bruun Jørgensen, sérfræðingur TV2, segir ljóst að Spánverjar hafi leikið best allra liða á EM að þessu sinni. Þeir hljóti hinsvegar að muna eftir undanúrslitaleiknum á HM í fyrra þar sem þeir biðu lægri hlut fyrir Dönum.
Jørgensen segir ennfremur að mestu máli skipti fyrir Dani í kvöld að leika góða vörn ætli þeir sér sigur. Sterk vörn og með Mikael Landin í stuði í markinu eigi danska liðið möguleika á að fá mörg hraðaupphlaup sem geti skipt máli þegar upp verður staðið, segir Jørgensen.
Ulrik Wilbek, landsliðsþjálfari Dana, sagði í gær að landsliðið hafi þegar náð a.m.k. einu takmarki á mótinu og það er að vera fyrir ofan Frakka, en þeir hafna í 11. sæti. Wilbek sagði leikinn við Spánverja verða jafnan og ómögulegt væri að segja til um úrslit. „Til þessa hafa Spánverjar leikið besta allra á EM þótt vissulega hafi Serbar, Króatar, Makedóníumenn og Slóvenar leikið vel enda fengið gríðarlegan stuðning á öllum leikjum sínum,“ sagði Wilbek.






