EM: Fimm þúsund færri miðar seldir

Momir Ilic fagnar marki með Serbum á EM. stækka

Momir Ilic fagnar marki með Serbum á EM. Reuters

Aðeins voru til sölu 15.000 aðgöngumiða á viðureign Serba og Króata í undanúrslitum Evrópumeistaramótsins í handknattleik þótt keppnishöllin í Belgrad rúmi rétt tæplega 20 þúsund áhorfendur.

Til þess að tryggja betur öryggi var ákveðið að takmarka framboð miða við 15 þúsund. Þeir eru allir seldir eftir því sem næst verður komist.

Öryggisgæslan fyrir utan keppnishöllina og innan hennar er gríðarlegt. Talið er að um 5.000 lögreglu- og sérsveitarmenn séu nú fyrir utan og inni í Beogradska Arena um þessar mundir. Þá er ótaldir óvopnaðir öryggisverðir sem eru á hverju strái.

Leikur Serba og Króata hefst kl.19.15 að íslenskum tíma.

  • Til baka
  • Blogga um frétt
  • Senda

Íþróttir, EM handbolta — Fleiri fréttir

Mánudaginn 30. janúar

Sunnudaginn 29. janúar

Laugardaginn 28. janúar

Föstudaginn 27. janúar

Fimmtudaginn 26. janúar

Miðvikudaginn 25. janúar


finnur.is