EM: Forseti EHF hættir í vor

Handbolti. stækka

Handbolti. mbl.is

Norðmaðurinn Tor Lian, sem verið hefur forseti Handknattleikssambands Evrópu, EHF, undanfarin átta ár tilkynnti í morgun að hann sæktist ekki eftir endurkjöri á þingi EHF í Mónakó 22. og 23. júní. Lian hefur setið í stjórn EHF frá stofnun árið 1991 og segir mál til komið að draga saman seglin.

Varaforseti EHF, Jean Brihault, hefur ákveðið að gefa kost á sér til embættis forseta en hann hefur verið varaforseti í forsetatíð Norðmannsins.

  • Til baka
  • Blogga um frétt
  • Senda

Íþróttir, EM handbolta — Fleiri fréttir

Mánudaginn 30. janúar

Sunnudaginn 29. janúar

Laugardaginn 28. janúar

Föstudaginn 27. janúar

Fimmtudaginn 26. janúar

Miðvikudaginn 25. janúar


finnur.is