Íþróttir
|
EM handbolta
| mbl
| 27.1.2012
| 16:33
| Uppfært
8.2.2012
14:16
EM: Lazarov markahæstur í sögu EM
Kiril Lazarov, frá Makedóníu, er sá handknattleiksmaður sem skoraði hefur flest mörk í lokakeppni Evrópumóts í handknattleik. Hann lauk keppni í dag í sigurleiknum á Slóvenum um 5. sæti með átt mörk og hefur þar með skorað 61 mark í keppninni að þessu sinni. Makedóníumaðurinn er fimmti handknattleiksmaðurinn sem skorar yfir 50 mörk í lokakeppni EM frá því að fyrsta keppnin var háð 1994.
Ólafur Stefánsson átti fyrra metið sett á EM 2002, 58 mörk í átta leikjum. Lazarov lék sjö leiki að þessu sinni. Aðrir sem náð hafa að skora yfir 50 mörk í lokakeppni EM eru: Filip Jicha, Tékklandi, 53 mörk á EM 2010, Sergei Rutenka, Slóveníu, 51 mark á EM 2006, og Vasily Kudinov, Rússlandi, 50 mörk á EM 1994 í Portúgal.
© Árvakur hf.
Öll réttindi áskilin






