EM: Markamet Ólafs er fallið

Kiril Lazarov sækir að vörn Þjóðverja í leik á EM á dögunum. stækka

Kiril Lazarov sækir að vörn Þjóðverja í leik á EM á dögunum. Reuters

Markamet Ólafs Stefánssonar á Evrópumeistaramótinu 2002, 58 mörk, er fallið. Makedóníumaðurinn Kiril Lazarov bætti það rétt áðan þegar hann skoraði sjötta marki sitt og 23. mark Makedóníu í leiknum við Slóveníu um 5. sætið á Evrópumeistaramótinu í Serbíu.

Fyrir leikinn í dag er Lazarov kominn með 53 mörk og þurfti því að skora sex mörk til að bæta met Ólafs. Lazarov skoraði fimm mörk í fyrri hálfleik en gekk illa að skora sjötta markið og það heppnaðist ekki fyrr en á 16. mínútu síðari hálfleiks.

Ólafur skoraði mörkin sín 58 í átta leikjum en Lazarov er að spila sinn sjöunda leik á mótinu. Lazarov á einnig markametið á heimsmeistaramótinu, 93 mörk, frá HM 2009 í Króatíu.

  • Til baka
  • Blogga um frétt
  • Senda

Íþróttir, EM handbolta — Fleiri fréttir

Laugardaginn 24. mars


finnur.is