Guðjón markahæstur í þriðja sinn
Guðjón Valur Sigurðsson var markahæsti leikmaður Íslands á EM að þessu sinni og er þetta í þriðja sinn í röð sem hann skorar flest mörk Íslands í lokakeppni EM. Alls skoraði Guðjón Valur 41 mark að þessu sinni í sex leikjum. Næstur varð Aron Pálmarsson með 22 og marki á eftir honum Arnór Atlason. Þá voru Róbert Gunnarsson og Þórir Ólafsson með 18 mörk hvor.
Aðrir sem skoruðu voru: Aleaxander Petersson 13, Ásgeir Örn Hallgrímsson 13. Rúnar Kárason 9, Vignir Svavarsson 9, Kári Kristján Kristjánsson 6, Ólafur Bjarki Ragnasson 3, Sverre Jakobsson 3 og Ólafur Guðmundsson 1.
Eins og fyrr segir þá er þetta þriðja EM mótið í röð sem Guðjón Valur er markahæstur íslensku leikmannana. Hanna skoraði 39 mörk á EM fyrir tveimur árum í átta leikjum og deildi þá markakóngstitlinum með Arnór Atlasyni. Á EM í Noregi skoraði Guðjón Valur 34 mörk í sex leikjum, sex mörkum meira en Snorri Steinn Guðjónsson sem varð næst markahæstur. iben@mbl.is






