Króatar yfir í hálfleik gegn heimamönnum

Blazenko Lackovic leikmaður Króata sækir að marki Serba. stækka

Blazenko Lackovic leikmaður Króata sækir að marki Serba. Reuters

Króatar fara með eins marks forskot til búningherbergja í hálfleik í undanúrslitum gegn Serbíu á Evrópumótinu sem fram fer á heimavelli síðarnefnda liðsins. Staðan er 14:13 en Króatar eru búnir að vera með frumkvæðið lengst af.

Gríðarleg stemning er í höllinni og eru það að sjálfsögðu Serbar sem njóta þess. Króatar hafa hinsvegar haldið ró sinni og spila mjög agað.

Þrír leikmenn Króata hafa skorað þrjú mörk í fyrri hálfleiknum og tveir leikmenn Serba fjögur mörk.

Liðið sem hefur betur þegar 60 mínútur eru búnar mætir Dönum í úrslitum á sunnudaginn.

  • Til baka
  • Blogga um frétt
  • Senda

Íþróttir, EM handbolta — Fleiri fréttir

Mánudaginn 30. janúar

Sunnudaginn 29. janúar

Laugardaginn 28. janúar

Föstudaginn 27. janúar

Fimmtudaginn 26. janúar

Miðvikudaginn 25. janúar


finnur.is